Klukkuð !

Það er búið að klukka mig og þori ég ekki öðru en að verða við klukkuninni og setja hér fram 8 staðreyndir um mig sjálfa.

Here goes:

1. Uppáhalds rithöfundurinn minn er Margareth Atwood.

2. Mér finnst nafnið Blika mjög fallegt......hefði skýrt dóttur mína þessu nafni en fjölskyldan átti einu sinni hryssu að nafni Blika .......svo það gekk ekki.

3. Mér finnst góður rjómi.......með næstum öllu og líka eintómur.

4. Um þessar mundir finnst mér fjólublátt vera afar fallegur litur.

5. Ég hef aldrei flogið í loftbelg.

6. Mig langar ekki til að eiga jeppa.

7. Ég á eftir að fara til Afríku.

8. Ég þarf ekki að vita nafn og staðsetningu á fjalli til að kunna að meta það. Eins hef ég ekki þörf fyrir að vita deili á fólki - "hverra manna" það er.

Góðar stundir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Alltaf langflottust. Auðvitað.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:36

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

P.S.: Þarf samt að segja þér hverra manna ég er, ég er Jensen, t.d.... Og margt annað.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:37

3 Smámynd: Þorbjörg Ásgeirsdóttir

Já......sko, varðandi Jensenana ......þið eruð alveg sér á parti hjá mér.

Þorbjörg Ásgeirsdóttir, 18.7.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband