Brotalöm

Sá í gćr kvikmyndina Fracture; spennumynd frá USA međ Ryan Gosling og Anthony Hopkins. Myndin hefur fengiđ góđa dóma og ţess vegna var ég forvitin ađ sjá hana. Íslensku ţýđinguna á titlinum fékk ég frá manninum sem var á undan mér í miđaröđinni, honum Pedro Riba, hvers móđurmál er spćnska.  Ţar varđ 100% aukning á ađilum sem tilheyra hópnum "útlendingar sem tala betri íslensku en ég"  en Volli var ţar einn fyrir. 

Brotalöm/Fracture er ekki versta mynd sem ég hef séđ, en engann veginn međ ţeim betri.  Leikararnir reyndar fínir en ţađ var handritiđ og e.t.v. leikstjórnin sem var ekki alveg nógu ţétt. Ég (miđaldra, ţreytt og utanviđsig kona á ísköldu mánudags-vorkvöldi)  gat mér til um lausn gátunnar strax á fyrsta korterinu og fékk svo stađfestingu á ágiskun minni í atriđinu sem var undanfari lausnarinnar.......sem sagt allt of fyrirsjáanlegt.  Sennilega er ég búin ađ sjá of margar lögfrćđi-spennumyndir og kann ţetta meira og minn autanađ, en svo var ţetta bara einfaldlega frekar léleg mynd.  Ţó var einn dálítiđ smellinn punktur í handritinu en ţađ var val vonda kallsins á einu fórnarlambinu  (ungi duglegi lögfrćđingurinn) en ţađ sagđi hann vera ţá stađreynd ađ ungi lögfrćđingurinn vildi vinna öll sín mál (a winner)  en í  ţessu samhengi virkađi ţađ sem veikleiki.  Ţannig er ţađ nefnilega oft í raunveruleikanum ţ.e. styrkleiki getur einnig veriđ veikleiki.  Ég er t.d. mjög jarđbundin.......sem er oftast gott og mikill styrkur......en getur líka veriđ veikleiki, í vissu samhengi.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband