Grýla lifir.

Ég dreg ekki sannleiksgildi þessarar fréttar í efa en ég virðist aldrei detta um neinar fréttir frá Íran, eða um Íran nema í þessum dúr. Siðasta frétt sem ég sá á mbl eða í Mogganum um Íran var frétt um að dauðadómi yfir einhverju fólki hafði verið framfylgt í Íran. Það er einhver grýlu-lykt af þessu.......rússagrýla, íslamgrýla.


mbl.is Umbótasinnuðu dagblaði lokað í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Já nákvæmlega, fágætar jákvæðar fréttir frá Íran. Við eigum að halda að allir gangi um með lúmskar áætlanir um að yfirtaka hinn vestræna heim. Þunnur þrettándi. Það góða í stöðunni er hins vegar það að fleiri og fleiri virðast vera að sjá í gegnum þetta lyganet vestursins sem stjórnast að sjálfsögðu á fégræðgi rjómakökutoppsins. Alltaf gott og gaman að sjá fólk eins og þið láta álit sitt í ljós á þessu málefni.

Ég vill sjá myndir af brosandi börnum í Íran og foreldrum að leik við börnin sín á fallegri strönd...en það er náttúrulega óhugsanlegt þar sem ALLIR arabar eru ómanneskjulegir hryðjuverkamenn

Lárus Gabríel Guðmundsson, 6.8.2007 kl. 22:46

2 Smámynd: Þorbjörg Ásgeirsdóttir

Takk fyrir kommentið félagi Lárus.  Jú, jú....það þýðir ekki að taka strútinn á alla hluti....maður/kona verður að reyna að viðhafa gagnrýna hugsun... svona annað slagið.

Þorbjörg Ásgeirsdóttir, 7.8.2007 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband